Frönsk Súkkulaðikaka

Uppskrift
1 bolli sterkt uppáhelt kaffi (má varíera með kaffilíkjörum)
200 gr sykur
20 gr púðursykur
300 gr smjör (grænt saltlaust)
400 gr 70% súkkulaði (4 pakkar)
5-6 egg

Aðferð

Kaffi og sykur sett í pott, suðan látin koma upp og sykurinn leystur upp. Pottur tekin af hellu, smjör og súkkulaði bætt í og brætt saman. Látið blönduna kólna aðeins. Eggjum bætt í, gott að hræra þau sér og hella svo við. Klæðið stórt lausbotna form með bökunarpappír og smyrjið vel. Hveitistráið formið að innan og setjið súkkulaðiblönduna í bakstur í 1 klst. á blæstri við ca. 180°C.

Kælist vel áður en borin fram. Er góð bæði sama dag og næsta dag (verður þéttari). Gott að bera fram hlaðna með ferskum berjum og sigta flórsykur yfir.

Algjör snilld sem hefur slegið í gegn og einfalt að baka .